![]() | Framfarasporið 2007 fór á Drangsnes Hjónin Ásbjörn Magnússon og Valgerður Magnúsdóttir eru að mati þátttakenda Arnkötlu 2008, ferðaþjónar ársins 2007. Þau hafa staðið sig afbragðsvel í að hlúa að ferðaþjónustu á svæðinu og opnuðu á síðasta ári nýtt gisthús og glæsilegt veitingahús á Drangsnesi. Framfarasporið 2007 er viðurkenning sem er veitt af Arnkötlu 2008 og er eftir listakonuna Ástu Þórisdóttur sem afhenti þeim hjónum viðurkenningargripinn. Framfarasporið 2007 mun væntanlega prýða veggi veitingastaðarins Malarhorn á Drangsnesi um alla ókomna framtíð. Arnkatla 2008 eru samtök ferðaþjónustuaðila á Ströndum og Reykhólasveit hélt uppskeruhátíð á veitingastaðnum Café Riis í gærkvöldi, í lok tveggja daga stefnumótunarfundar. Á fundinum var stefna verkefnisins mörkuð fram til ársins 2012 og innan tíðar mun liggja fyrir nokkuð nákvæmt aðgerðarplan. Vegna veðurs undanfarna daga varð þátttaka á fundinum ekki alveg jafn góð og vonast hafði verið til, en ferðaþjónustuaðilar úr Árneshreppi og Reykhólasveit áttu ekki heimangengt vegna veðurs. Engu að síður var mikill hugur í fundarmönnum en um það bil þrjátíu aðilar eiga aðild að Arnkötluverkefninu. Sævar Kristinsson rekstrarráðgjafi hjá Netspor stýrði vinnunni á fundinum. |
![]() | Whale Watching Conference in Iceland International Whale Watching Conference in Selfoss Iceland 13.-15. mars 2008. Organised by Icewhale, the Icelandic Whale Watching organisation and IFAW, the International Fund For Animal Welfare. www.icewhale.is www.ifaw.org |
![]() | Hvalir og selir á Steingrímsfirði Whales and seals on the fjord Steingrímsfjörður in NW Iceland |
![]() | Hvar er hún, þessi bryggjuhátíð of gott grín til að sleppa! |